...já hvað fréttir maður ekki á baðinu hjá Matta!
ég fór semsagt til Rvk um helgina

það var alveg ógisslega
gaman...fyrir utan eitt sem
ég HATA...og það er farartækið flugvél, ojj...það er ekki
skemmtilegt apparat. En það hafðist samt, ég er komin heim...ÚR
flugvélinni...mér tekst alltaf að finna einhvern einn mann í
flugvél sem ég er alveg búin að ákveða að er með sprengju eða
eitthvað. Ég einmitt horfði mjög mikið á einn karlmann þarna á
vellinum...hann var með skjalatösku, sem allir vita að er alltaf
sprengja í...það er náttúrulega bara svoleiðis, þannig að ég
byrjaði að horfa á hann og ætlaði að skella mér í smá CSI missjon
og koma upp um manninn með skjalatöskuna...en svo viti menn! ég
labbaði framhjá honum og rakst svona nett í töskuna hans og hann
gjörsamlega snappaði!! já...þá vissi ég að hann var að leyna
einhverju! hann var ýkt fúll gaur, tók einhverja pappíra upp úr
skjalatöskunni (sprengjupappíra náttúrulega, hvað annað?) og svo
fylgdist ég með hverju skrefi hans í flugvélinni...en þau voru nú
fá þar sem hann stóð ekkert upp, þannig að hann var búinn að koma
þessu öllu vel fyrir líklega. En svo einhverra hluta vegna virkaði
sprengjan ekki...allavega ekki á þessum klukkutíma svo að ég komst
hingað alveg ósprengd!
þetta var leiðin frá rvk til egs...ég var búinn að ákveða að
gaurinn fyrir aftan mig væri með svo suspissjös úr að það væri
líklega einhverskonar sprengja í því...en svo fékk hann sér
sykurlausann eplasvala þannig að ég sleppti honum lausum...ég trúði
ekki að kallar með sykurlausann eplasvala væru vondir menn...þannig
að hann var laus úr mínum höndum...
en jájá...ég flaug ekki meira í þetta sinn...en ég fór á þingvelli
með Einari

það var mjög gaman...við höfðum aldrei farið
þangað...obboslega gott veður

og skoðuðum gullfoss og geysi...já
þetta var æðisleg helgi, alveg þess virði að vera í flugvél :*
eftir þetta blogg ætti fólk að vera búið að átta sig svona
nokkurnvegin hversu geðveik ég er...en óóóóteij bæj :*
setning
helgarinnar: eigum við Helga þá bara að vera Einar í bílnum?
HAHA